Ómar B.

19.12.2011 11:00

Horft til suðrænna slóða ..




Seyðfirðingar ásamt fleiru góðu fólki horfa nú til suðrænna golfslóða enda ekki spurning um að nýta dimmasta tíma ársins til að láta sig dreyma um iðagræna golfvelli litlu sunnar en Hagavöllur, Jaðarsvöllur, Grænanesvöllur og Ekkjufellsvöllur eru, svo dæmi séu tekin.
Niðurstaða vorsins er að við stefnum á Costa Ballena frá 2. maí - 12. maí enda vorum við sem þar vorum síðasta vor einstaklega ánægð og hlökkum mikið til að njóta góðs félagsskapar og frábærrar aðstöðu sem þar er frá a - ö.  

Stýrimaðurinn Sveinbjörn Orri, sem kíkti við hjá mér í kaffi er nýkominn úr síðustu sjóferðinni á Gullver NS 12 fyrir jól. 

Við Orri ásamt öðrum GSF golfurum sendum okkar bestu kveðjur til ykkar allra sem hér kíkið við með frómum óskum um gleðileg jól og heilla- og hamingjuríks komandi golfárs!

Ómar B.

    Vafraðu um

    Ómar B.

    Nafn:

    Ómar Bogason

    Heimilisfang:

    Garðarsvegi 18, Seyðisfirði
    clockhere

    Tenglar

    Flettingar í dag: 37
    Gestir í dag: 9
    Flettingar í gær: 47
    Gestir í gær: 18
    Samtals flettingar: 127081
    Samtals gestir: 36421
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 21:40:40