|
Ómar B. |
|
16.05.2012 11:08Costa Ballena, 2. maí - 12. maí 2012.Hópurinn okkar á Costa Ballena, 8. maí 2012. Nú erum við komin heim eftir frábæra ferð til Costa Ballena og það er óhætt að segja að ferðin hafi heppnaðst virkilega vel í alla staði. Það er alltaf gaman að ferðast með skemmtilegum ferðafélögum og að kynnast góðu fólki í golfinu. Einnig var mjög gaman að spila bæði Costa Ballena golfvellina og Sherry golfvöllinn sem staðsettur er í útjaðri borgarinnar Jerez de la Frontera. Veðrið á svæðinu hafði verið nokkuð rysjótt áður en við komum og við fengum smá sýnishorn annan daginn okkar á C.B. en þá rigndi eins og hellt væri úr fötu um morguninn en við náðum að byrja að spila um kl. 3 eftir hádegi. Næstu daga var frábært veður og það hlýnaði jafnt og þétt og síðustu tvo dagana var hitinn orðinn um 35°c og þá var líka þó nokkur vindur. Það er samdóma álit okkar sem vorum á Costa Ballena þessa 10 vordaga að ferðin hafi verið virkilega vel heppnuð og skemmtileg. Fararstjórum og forsvarsmönnum Heimsferð þökkum við fyrir óaðfinnanlega þjónustu og fararstjórn og ferðafélögunum öllum þökkum við kærlega fyrir skemmtileg kynni. Útskriftarnemunum óskum við hjartanlega til hamingju með diplómuna og að sjálfsögðu erum við stoltir af útskriftarnemunum okkar þeim Hrefnu og Önnu. Ég er búinn að setja inn þó nokkuð af myndum úr ferðinni inn í albúm og að lokum óska ég ykkur öllum gæfu og gengis í sumar hvort sem er á golfvellinum eða annari lífsins gönguför. Með bestu kveðjum frá GSF félögum á Seyðisfirði, Ómar B. 26.04.2012 09:56Costa Ballena, 2. maí.Inngangurinn að Costa Ballena vellinum. Nú styttist í árlega golfferð Seyðfirðinga og að þessu sinni verður flogið á Jerez á Spáni og síðan liggur leiðin til Costa Ballena. Það verða ekki bara Seyðfirðingar í hópnum okkar nú, inn í hópinn okkar koma frábærir ferðafélagar og golfarar frá Akureyri, Neskaupstað og Egilsstöðum. Við ætlum sem sagt að vera í 10 daga á Bercelo Costa Ballena hótelinu http://www.barcelo.com og heimavöllurinn að þessu sinni á Spáni verður Costa Ballena Ocean golfvöllurinn þ.e.: http://www.ballenagolf.com/ Við stefnum á að spila fleiri velli og ákveðið er að spila m.a. Sherry Golf Jerez http://www.sherrygolf.com/ og hver veit nema að við fáum okkur sherrý glas á eftir. Það er mikil tillhlökkun í hópnum enda alltaf svo gaman að spila golf með góðum félögum og ekki síður að kynnast nýjum golfurum og njóta þess að slá hvítu kúluna út og suður. En ég reikna með að setja inn einhverjar myndir hér þó svo að facebook virðist hafa yfirtekið allt og alla þar á meðal mig en ég ætla nú samt að reyna að standa við stóru orðin og setja inn myndir hér einhvern tíma í ferðinni. Ég óska vinum mínum og félögum sem eru farnir og eru að fara á aðra golfvelli s.s. Islantilla og El Rompido góðrar ferðar og eins öllum þeim sem verða á golf faraldsfæti þetta vorið. Með bestu kveðjum til ykkar sem lesið þetta, Ómar B.
|
clockhere Tenglar
Eldra efni
Flettingar í dag: 54 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 45 Gestir í gær: 16 Samtals flettingar: 131770 Samtals gestir: 37810 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:51:42 |